Hægrimaðurinn Abelardo de la Espriella tók við embætti forseta Kólumbíu í kvöld. Innsetningarathöfnin var haldin í Salsa-borginni Cali en ekki höfuðborginni Bogota, líkt og hefð er fyrir.Abelardo de la Espriella hafði nauman sigur gegn vinstrimanninum Ivan Cepeda í síðari umferð forsetakosninganna í sumar, sem einkenndust af ofbeldi og hörðum deilum. De la Esprirella, sem kallar sig „Tígurinn“, hefur lýst mikilli aðdáun á stjórnarháttum Donalds Trump Bandaríkjaforseta og naut fulls stuðnings hans í kosningabaráttunni.Hann er auðugur lögfræðingur sem þykir afar litríkur. Nýi forsetinn heitir því að efla tengslin við Bandaríkin og Ísrael, berjast af hörku gegn vopnuðum sveitum eiturlyfjabaróna, byggja risastór fangelsi og draga úr umsvifum ríkisins.Mikill öryggisviðbúnaður var í Cali, þar se