Simon Levy, fertugur Breti, var í dag fundinn sekur fyrir Sakadómi Englands og Wales í London, Old Bailey eins og dómstóllinn er kallaður í daglegu tali, um tvö manndráp, nauðgun og stórfellda líkamsárás. Saga hans er hins vegar mun lengri og kostaði alvarleg handvömm refsivörslukerfisins mannslíf.