Opna safn um Gísla á Uppsölum

Gísli Októvíanus Gíslason, einbúi í afskekkta dalnum við Arnarfjörðinn, fangaði athygli þjóðarinnar í Stiklum Ómars Ragnarssonar á síðari hluta síðustu aldar. Gísli var sjálfur skáld og rithöfundur.Nú er búið að gera upp hús Gísla og opna þar safn. Að baki því stendur nýstofnað Hollvinafélag Gísla á Uppsölum. Undanfarin misseri hefur verið unnið að því að koma húsinu að Uppsölum í þokkalegt horf, hreinsa það, tengja þangað rafmagn, leggja pípulagnir, setja hitalagnir í gólf og lagfæra veginn upp að Uppsölum.Neðri hæð hússins að Uppsölum hefur verið lagfærð, svo hægt verður að nota eldhús og herbergi neðri hæðar til að taka á móti gestum. Á efri hæðinni hafa híbýli Gísla hins vegar verið endurgerð í upprunalegri mynd.Við tilefnið las Þröstur Leó Gunnarsson leikari nokkur kvæði eftir Gísla.
Opna safn um Gísla á Uppsölum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd