Fossinn er einn þekktasti foss landsins og er hluti af svokölluðum Gullna hring.Það er alltaf gaman að koma á svæðið við Gullfoss og skoða fossinn og nágrenni hans. Stöðug umferð ferðamanna er á staðnum alla daga, þó mest um helgar. Flestir ganga að útsýnispallinum neðst við fossinn og njóta þess að horfa þaðan og taka myndir. Um 1,5 milljónir ferðamanna heimsækja fossinn árlega.Sigríður Tómasdóttir í Brattholti er sú kona sem barðist gegn því á sínum tíma að fossinn yrði virkjaður og vildi alltaf að fossinn fengi að flæða fram af hamrinum og hún náði því í gegn en vegna þessarar baráttu Sigríðar er hún oft kölluð fyrsti íslenski náttúruverndarsinninn. Árið 1979 var Gullfoss og nágrenni hans friðlýst sem náttúruvætti og er fossinn nú verndaður til framtíðar.Á planinu fyrir ofan fossinn er