Örlög veislusalarins í Hvíta húsinu í höndum Hæstaréttar

Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að ekki verði haldið áfram með byggingu veislusalar sem koma á í stað austurálmu Hvíta hússins nema með samþykki öldungadeildar þingsins. Áfrýjunardómstóllinn staðfesti úrskurð lægra dómstigs um að engin lög gefi forsetanum vald til þess að gera svo miklar breytingar á Hvíta húsinu án samþykkis þingsins.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þegar brugðist við úrskurðinum og heitið því að fara með málið fyrir Hæstarétt Bandaríkjanna. Í færslu á Truth Social segir Trump að úrskurðurinn varði þjóðaröryggi Bandaríkjanna því samhliða byggingu salarins verði byggð sprengjubyrgi, sjúkrahús, hernaðaraðstaða og fleira.Í frétt New York Times segir að ákvörðunin þýði ekki að framkvæmdum verði samstundis hætt. Ríkisstjórn Trumps hefur 14 daga til að áfr
Örlög veislusalarins í Hvíta húsinu í höndum Hæstaréttar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd