Aðilar vinnumarkaðarins, Samtökin 78 og ráðherrar dóms- og félagsmála undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf sem ætlað er að efla jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á vinnumarkaði.Stofnaður verður aðgerðahópur sem á að þróa fræðsluefni og verkfæri fyrir vinnustaði og þá er stefnt að því að ráðast í frekari greiningar á stöðunni, en rannsókn sem kynnt var á fundinum bendir til þess að það halli á efnahagslega stöðu hinsegin fólks á Íslandi.„Hinsegin fólk er alls staðar á vinnumarkaðnum og rannsóknir hafa sýnt að ekki allt hinsegin fólk upplifir að það geti verið opið með hinseginleika sinn. Það er talað um 47% í rannsóknum BHM. Þetta er svo sannarlega stórt skref í rétta átt og nú verðum við bara að láta verkin tala,“ sagði Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna 78,