Fyrirlestur dr. Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, um Ísland og ESB verður ekki í hátíðarsal Háskóla Íslands eins og auglýst hafði verið. Rektor segir salinn ekki ætlaðan viðburðum sem eru pólitískir í eðli sínu og að bókun hans hafi ekki fylgt upplýsingar um að félagasamtök kæmu að fundinum.Fyrirlestur dr. Baudenbachers, sem verður 10. ágúst, var auglýstur á heilli síðu í Morgunblaðinu í gær. Í auglýsingunni kemur fram að rædd verði ýmis álitaefni um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu og fundarstjóri sé Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands. Þá verði bók dr. Baudenbachers og dr. Lauru M. Baudenbacher til sölu á staðnum.Neðst í auglýsingunni er merki samtakanna Áfram Íslands og Almenna bókafélagsins og fram kemur að fyrirlesturinn sé í samstar