Fæðubótarefnið Pre-Workout er til sölu í matvöruverslunum og heilsubúðum undir ýmsum vörumerkjum.Það er markaðssett sem heilsueflandi, það auki úthald á æfingum og bæti endurheimt. Efnið getur innihaldið allt að 330 milligrömm af koffíni í einum skammti.Fréttastofu hafa borist ábendingar um unglinga sem hafa neytt Pre-Workouts og þurft í kjölfarið að leita til læknis vegna koffíneitrunar.Einkenni á borð við hjartsláttartruflanir, höfuðverk, svima, ógleði og kvíða gerðu vart við sig, auk neikvæðra áhrifa á svefn.Tilkynningar hafa einnig borist til Embættis landlæknis.Embætti landlæknis fær reglulega tilkynningar um börn og unglinga sem sýna einkenni koffíneitrunar eftir neyslu á fæðubótarefnum. Markaðssetningu er beint sérstaklega að ungu íþróttafólki. EITRUNARÁHRIF GETA VERIÐ STÓRHÆTTULE