Um sex til sjö hundruð Íslendingar sem búið hafa lengi erlendis munu ekki geta kosið í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst þrátt fyrir að hafa óskað eftir því að komast aftur á kjörskrá. Ný kjörskrá tekur gildi 1. desember ár hvert. Þeirri dagsetningu var hnikað fyrir síðustu þingkosningar en ekki í þetta sinn.