Hjólhýsi fauk á hliðina og þveraði veginn um Gilsfjarðarbrú skömmu fyrir klukkan fimm síðdegis. Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum, segir engum hafa orðið meint af.Hann hvetur fólk til að huga að veðri og veðurspá á ferðalögum. Það sé mjög hvasst á þessu svæði.Brúin var opnuð aftur um klukkan 17:40.Brúin yfir Gilsfjörð. Mynd úr safni.RUV.IS / Jóhannes Jónsson