Tugir þúsunda bíða spenntir eftir sjónarspilinu mikla, sólmyrkvanum, næstkomandi miðvikudag. Upplifunin mun óhjákvæmilega markast mjög af veðrinu, heiðskír himinn er óskastaðan en dumbungur öllu verri, að ekki sé minnst á svargráa og regnbólgna kólgubakka. En það er ekki bara veðrið sem hefur áhrif á upplifun fólks á almyrkvanum - hann hefur líka áhrif á veðrið.Það kólnar, vind getur lægt - en hann gæti líka aukist, ýmsar aðstæður spila þar inn í, segir Trausti Jónsson, sem rannsakað hefur áhrif sólmyrkva á hita og vind. Og rétt eins og skýin geta eyðilagt upplifun og ánægju fólks af sólmyrkva, þá getur sólmyrkvinn leyst upp skýin, sérstaklega skúraklakka.Áhrifin á vindinn eru lítil og vísindamönnum gengur erfiðlega að finna meinta sólmyrkvalægð, sem er svo ræfilsleg - ef hún er þá til - a