Laxar sem stangveiðimenn sleppa í Laxá geta endað í netum í Skjálfanda

Silungaveiði í netum við Skjálfandaflóa er bæði tímaskekkja og skaðleg náttúrunni, að mati forsvarsmanna veiðifélaga á svæðinu. Í netunum drepast laxar sem stangveiðimönnum ber að sleppa.Jón Helgi Björnsson er líffræðingur auk þess að vera formaður veiðifélags Laxár í Aðaldal og Landssambands veiðimanna. Hann tók myndbönd í Gvendarbási, fjöru við Skjálfanda skammt frá Húsavík, þar sem sjást dauðir laxar og sjófuglar í silunganetum.Ekki fjarri rennur Laxá til sjávar með nokkra af vinsælustu veiðistöðum landsins.Veiðifélögin hafa lengi verið gagnrýnin á netaveiðarnar, sem eiga sér langa sögu en eru orðnar sjaldséðari í dag. Jón segir sveitarfélagið og Fiskistofu hafa sýnt athugasemdum þeirra lítinn áhuga í gegnum árin, en eftir að myndböndin fóru á flug ákvað Fiskistofa að bregðast við.Dauði
Laxar sem stangveiðimenn sleppa í Laxá geta endað í netum í Skjálfanda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd