Hinsegin dagar standa nú yfir á Íslandi þar sem samfélagið fagnar þeim stóru áföngum sem náðst hafa í réttindabaráttu hinsegin fólks á undanförnum áratugum. Íslenska þjóðin á fjölda ötulla og landsþekktra einstaklinga úr röðum samkynhneigðra sem hafa náð langt á sínum starfsvettvangi.