Skriðuhætta á Ströndum

Veðurstofan varar við skriðuhættu á norðvestanverðu og norðaustanverðu landinu um helgina vegna mikillar úrkomu, einkum á Ströndum. Það haldi áfram að rigna fram á annað kvöld.Unnur Blær A. Bartsch skriðusérfræðingur á Veðurstofunni segir ekki hægt að útiloka grjóthrun og minni skriður í bröttum hlíðum. „Það hefur fallið skriða í dag á Ströndum sem fór á veg, líklegast neðan við Birgisvíkurfjall.“
Skriðuhætta á Ströndum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd