Dreifðu falsfréttum um afsögn Þýskalandskanslara

Yfirvöld í Þýskalandi telja hóp sem tengist leyniþjónustu rússneska hersins standa að baki fölsuðu myndbandi af Þýskalandskanslara sem fór í dreifingu á netinu. Í myndbandinu var því haldið fram að kanslarinn hygðist segja af sér.Í myndbandinu eru merki þýska ríkisfjölmiðilsins Deutsche Welle og viðskiptablaðsins Handelsblatt notuð.Þar er því haldið fram að gögn frá Kristilega demókrataflokknum CDU sýni fram á að Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, ætli að segja af sér í næstu viku vegna dvínandi fylgis flokksins í skoðanakönnunum.Báðir fjölmiðlar segja myndbandið falsað að öllu leyti.Upplýsingarnar í myndbandinu úr lausu lofti gripnarÍ yfirlýsingu skrifstofu Merz segir að fullyrðingarnar í myndbandinu séu úr lausu lofti gripnar. Þær séu einfaldlega þvættingur sem ætlað sé að rugla fólk í
Dreifðu falsfréttum um afsögn Þýskalandskanslara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd