Undirrituðu samning um aukið varnarsamstarf og fælingarmátt

Stjórnvöld í Sádi-Arabíu, Pakistan og Tyrklandi hafa skrifað undir varnarsamning þar sem segir að árás á eitt ríkjanna jafngildi árás á þau öll.Krónprins Sádi-Arabíu, Tyrklandsforseti og forsætisráðherra Pakistans undirrituðu samninginn í borginni Jeddah við Rauðahaf í dag.Samningnum er ætlað að efla sameiginlegar varnir ríkjanna og fælingarmátt þeirra. Hann kveður á um aukið varnarsamsamstarf, meðal annars sameiginlegar heræfingar og þjálfun, upplýsingamiðlun og samvinnu á sviði tækni. Í honum segir að árás á eitt ríkjanna samsvari árás á þau öll. ÁTÖK BANDARÍKJANNA OG ÍRANS TALIN HAFA FLÝTT FYRIR Með samkomulaginu sameina krafta sína olíuveldið Sádi-Arabía, kjarnorkuveldið Pakistan og Tyrkland, sem er með næstfjölmennasta her Atlantshafsbandalagsins.Sádi-Arabía og Pakistan gerðu tvíhl
Undirrituðu samning um aukið varnarsamstarf og fælingarmátt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd