Við sátum oft heima við kvöldverðarborðið eða á kaffistofunni í vinnunni og ræddum það sem stundum var kallað um daginn og veginn. Mest ræddum við samt um það sem við sáum í Sjónvarpinu kvöldið áður, fræðsluþáttinn um Sama frá finnska sjónvarpinu og breskan þátt um Sohohverfið í Lundúnum. Allir komu að umræðunni frá sama sjónarhóli, stofusófanum. Allir töluðu út frá sömu upplýsingum.