Nýlega birtist gömul ljósmynd í hópnum Gamlar myndir: tóbaks- og sælgætisverslunin Landstjarnan í Austurstræti með stjörnu yfir dyrunum og varning í gluggum. Fallegt hús og saklaus mynd. En Landstjarnan á sér sögu sem er merkilegri en útstillingarnar, því hún rataði í blöðin undir jólin 1917 — fyrir að hafa kveikt ljós.