Bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í gær að sveitarfélagið tæki þátt í útfararkostnaði Gunnars Þórðarsonar. Jafnframt var samþykkt að flaggað verði í hálfa stöng á útfarardegi hans.Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri segir í samtali við fréttastofu að bæjarstjórn hafi talið rétt að koma að þessu, í samráði við aðstandendur Gunnars. „Í ljósi alls þess sem hann hefur gert fyrir bæinn. Hann er einn af okkar sonum,“ segir Vilhjálmur.Aðspurður segir Vilhjálmur að styrkurinn hljóði upp á 500.000 krónur, sem sé í samræmi við kostnað við fyrri útfarir sem bærinn hefur styrkt.