Hvaðan fá já- og nei-hreyfingarnar peningana sína?

Ekki gilda sömu lög um félög og hreyfingar, sem beita sér í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar, og stjórnmálaflokka eða einstaka frambjóðendur.Ólíkt þeim síðarnefndu þurfa félagasamtök ekki að afhenda ríkisendurskoðanda yfirliti yfir styrki til og ekkert þak er á því hve háa upphæð þau mega þiggja. Þá þurfa þau ekki að gefa upp hver styrkir þau.Ríkisendurskoðandi sagði í fréttum í gær að engin leið væri að fylgjast með hvaðan fjármagn já- og nei-baráttuhópa fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna kæmi.Í nýrri skýrslu gerir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE athugasemdir við að hér á landi séu glufur í lagaumhverfi, sérstaklega um fjármögnun kosningabaráttu. Hvað er ÖSE? Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, var sett á fót 1973, samkvæmt Evrópuvef Háskóla Íslands.Stofnunin reynir að koma í
Hvaðan fá já- og nei-hreyfingarnar peningana sína?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd