Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ritari Sjálfstæðisflokksins, alþingismaður og ráðherra, hefur hafið störf hjá Fenris Creations, áður CCP Games, í London.„Um er að ræða eitt mest spennandi verkefni samtímans á sviði gervigreindar. Verkefnið snýst um hvernig samfélag okkar og hagkerfi mun breytast með áframhaldandi þróun gervigreindar, en á vettvangi Fenris eru einstök tækifæri til að prófa slíkar sviðsmyndir í öruggu umhverfi í nokkurs konar sýndarveruleika,“ segir Áslaug í færslu á Facebook.Áslaug Arna á að baki langan feril í stjórnmálum. Hún var kjörin á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn 2016. Hún tók sér leyfi frá þingstörfum í fyrra til að leggja stund á MPA-nám við Columbia-háskóla í NewYork í Bandaríkjunum. Hún sagði svo af sér þingmennsku í júní. Hún gegndi hinum ýmsu ráðher