Réttindagæsla fatlaðs fólks var færð undir Mannréttindastofnun Íslands þegar hún tók til starfa fyrir rúmu ári. Faðir ungs manns með hrörnunarsjúkdóm segir breytinguna gríðarlega skerðingu á réttindum fatlaðs fólks.Réttindagæsla fatlaðs fólks tók að sér mál fólks sem brotið var á og vann í tvö til fjögur þúsund málum á ári. Mannréttindastofnun tók til starfa 1. maí í fyrra og hún átti að taka við verkefnum réttindagæslunnar. Mannréttindastofnun veitir einungis ráðgjöf og tekur ekki að sér mál. MÍNÚTUR BREYTTUST Í MÁNUÐI „Þetta hefur haft gríðarlegar afleiðingar fyrir aðstandendur fatlaðs fólks vegna þess að þessi stofnun er ekkert með sama sniði og gamla réttindagæslan,“ segir Falur Þorkelsson, faðir ungs manns með hrörnunarsjúkdóm.Hann segir nær ómögulegt að ná sambandi við Mannréttind