Stjörnuparið Tom Holland og Zendaya giftu sig fyrr á árinu í lágstemmdri leynilegri athöfn og héldu svo annað brúðkaup með stórri veislu á sveitasetrinu Beaverbrook í Surrey í vikunni. Um 250 gestir voru í veislunni sem kostaði víst hálfan milljarð sterlingspunda og var strangt símabann á staðnum.