Leik KA og FH seinkað um stundarfjórðung

Leik KA og FH á sunnudagskvöldið hefur verið seinkað um 15 mínútur. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ í dag. Leikurinn er liður í 18. umferð Bestu deildar karla. FH-ingar fljúga til Akureyrar fyrir leikinn og hentar þeim ágætlega að fá örlítið lengri tíma á Akureyri eftir lendingu. Þá heldur KA N1 mót 6. flokks kvenna um helgina og hentar því þessi litla tilfærsla báðum félögum ágætlega. FH situr í 12. sæti deildarinnar og KA er stigi fyrir ofan í 10. sætinu.
Leik KA og FH seinkað um stundarfjórðung

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd