Hluta áhafnar Bandero, skips Paul Watson samtakanna, hefur verið vísað úr landi. Þetta staðsestir Helena Rós Sturludóttir upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra. Embættið hefur umsjón með brottflutningi fólksins.Samkvæmt heimildum fréttastofu hafa að minnsta kosti fimm þegar yfirgefið landið, þar á meðal skipstjórinn – en Helena Rós gat ekki staðfest það. Ekki liggur fyrir hvort fólkið hafi farið að eigin frumkvæði eða í fylgd yfirvalda.Skipið hefur verið kyrrsett í Sundahöfn að beiðni Samgöngustofu í viku. Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn þess eftir að Bandero reyndi að hefta för hvalveiðiskipsins Hvals 9 og hlýddi ekki fyrirmælum Gæslunnar. Í áhöfn Bandero var 21 skipverji frá 13 löndum. Þeim var birt ákvörðun um brotvísun og endurkomubann – sem þeir frei