Þessi bílaleigubíll náði ekki yfir vað í grennd Landmannalauga í ágúst í fyrra.LandsbjörgÞað verður ákveðin norðaustanátt og vindhviður ná um 25 metrum á sekúndu í vindstrengjum á Vestfjörðum og á Snæfellsnesi í dag. Það dregur úr vindi á þessum slóðum eftir hádegi á morgun en þá bætir í vind undir Vatnajökli með álíka hvössum vindi. Þetta kemur fram í ábendingum frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar. Þar segir að það rigni áfram talsvert á sunnanverðu hálendinu. Því verða vöð yfir óbrúaðar ár krefjandi yfirferðar, til dæmis á Fjallabaki. Það dregur úr úrkomu á morgun og þá sjatnar hægt í ám.