Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ritari Sjálfstæðisflokksins, alþingismaður og ráðherra, hefur hafið störf hjá Fenris Creation, áður CCP Games, í London.„Um er að ræða eitt mest spennandi verkefni samtímans á sviði gervigreindar. Verkefnið snýst um hvernig samfélag okkar og hagkerfi mun breytast með áframhaldandi þróun gervigreindar, en á vettvangi Fenris eru einstök tækifæri til að prófa slíkar sviðsmyndir í öruggu umhverfi í nokkurs konar sýndarveruleika,“ segir Áslaug í færslu á Facebook.Í tilkynningu frá Fenris Creations segir að Áslaug muni leiða samstarf félagsins við rannsóknastofur á sviði gervigreindar, háskóla, stefnumótendur og lykilsamstarfsaðila um nýtt rannsóknarverkefni sem tengist EVE Frontier.