Umhverfis- og orkustofnun veitti Orkubúi Vestfjarða virkjanaleyfi fyrir 9,9 MW Kvíslatunguvirkjun í byrjun júlí. Engar athugasemdir bárust áður en kærufrestur rann út. Einnig veitti stofnunin heimild til breytinga á vatnshlotum Svartagilsvatns, Efri-Kotvatna og Þjóðbrókargils.„Um er að ræða stóran áfanga í eflingu raforkukerfisins á Vestfjörðum ekki síst út frá afhendingaröryggi raforku í Strandabyggð og á Ströndum, en með virkjuninni er tryggð afhending á raforku úr tveimur áttum fyrir Hólmavík og nágrenni,“ segir í tilkynningu frá Orkubúi Vestfjarða.Með tilkomu virkjunarinnar eykst árleg framleiðslugeta Orkubús Vestfjarða um 67%. Afl virkjunarinnar nægir til að anna tvöföldu hámarksálagi landshlutans. Hún gæti því annað raforkuþörf í Strandabyggð og Ísafjarðardjúpi svo vikum skiptir ef u