Forsætisráðherra Taílands segir skotárás í skóla norðan við Bangkok aldrei hafa átt að gerast. Átta voru drepnir í árásinni og 23 særðust. Árásarmaðurinn, sem var fjórtán ára gamall, lést meðan á árásinni stóð.Drengurinn skaut afa sinn og ömmu til bana með skammbyssu afa síns áður en hann hélt í framhaldsskóla í Nonthaburi-héraði. Þegar þangað var komið skaut hann þrjá kennara og þrjá nemendur til bana, að því er fram kemur í yfirlýsingu taílensku lögreglunnar.„Ég var hrædd um að ég myndi deyja og að ég fengi ekki tækifæri til að láta drauma mína rætast,“ sagði Pawarisa Maylissa, nemandi við skólann, í samtali við fréttaveitu AFP.„Ég heyrði marga háværa skothvelli og það virtist sem árásarmaðurinn væri á hæðinni beint fyrir ofan okkur. Ég heyrði meira að segja þegar byssukúlur skullu í gól