Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, er hóflega bjartsýnn á framvindu kjaraviðræðna við Icelandair. Hann á von á að stíf fundarhöld séu framundan hjá ríkissáttasemjara í næstu viku.Samninganefndir undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu í júní um verkstýrða verkáætlun undir stjórn ríkissáttasemjara. Stefnt var að því að endurnýja kjarasamninga fyrir 15. september.„Við erum á sama stað og við vorum í júní,“ segir Jón Þór. Hann á von á að fleiri en einn fundur verði haldinn í komandi viku.„Það var uppleggið að leggja okkur fram við þetta.“