Margrét Helga skipuð dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra

Margrét Helga var settur dómari við Héraðsdóm Vestfjarða 2021, þar sem hún jafnframt gegndi störfum dómstjóra, og við Héraðsdóm Reykjaness 2025.StjórnarráðiðDómsmálaráðherra hefur skipað Margréti Helgu Kristínar Stefánsdóttur í embætti dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra frá 1. október. Hún hefur tvívegis verið sett tímabundið í embætti héraðsdómara.Margrét Helga lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2010, meistaraprófi 2013 og öðlaðist réttindi sem héraðsdómslögmaður sama ár. Auk lögmannsstarfa hefur Margrét Helga meðal annars starfað sem aðstoðarmaður dómara við Landsrétt og Hæstarétt, hjá dómstólasýslunni og nú síðast sem lögfræðingur hjá umboðsmanni Alþingis. Þá hefur hún verið ritari kærunefndar útboðsmála, setið í fjölmiðlanefnd og sinnt stundakennslu við lagadeild HÍ
Margrét Helga skipuð dómari við Héraðsdóm Norðurlands eystra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd