Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, gerði óvænta skiptingu í Evrópuleik liðsins gegn Dinamo-BSUPC frá Belarús þegar hann setti Taylor Kane, varamarkvörð liðsins inn á sem útileikmann. Kane var skipt inn á á 82. mínútu, þegar Blikar voru 2-1 undir og fór hún beint í fremstu víglínu.