Þrír hermenn jemenska stjórnarhersins féllu í drónaárás uppreisnarhers Húta í Jemen í dag. Fjórir til viðbótar særðust. Í gær féllu á sjötta tug stjórnarhermanna eftir dróna- og flugskeytaárásir Húta á hernaðarleg skotmörk í miðju og austanverðu landinu.Jemen hefur á síðustu dögum og vikum dregist í sívaxandi mæli inn í stríð Bandaríkjanna og Ísrael við Íran. Hútar hafa hert á árásum sínum, bæði gegn stjórnarhernum í Jemen og Sádi-Aröbum. Sádar eru lykilbandamenn Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og hafa frá árinu 2015 farið fyrir fjölþjóðaher sem styður stjórnarherinn í Jemen.Í gær særðust ellefu almennir borgarar í Sádi-Arabíu, þar á meðal fjögurra ára gamalt barn, í árásum Húta á suðurhluta landsins. Hundruð þúsunda hafa farist í borgarastyrjöldinni í Jemen sem hófst 2014. Hútar og alþjó