Táningur skaut átta til bana í Taílandi

Átta voru myrtir í skotárás í skóla norðan við taílensku höfuðborgina Bangkok í morgun. Staðarmiðlar segja árásarmanninn fjórtán ára dreng, nemanda við skólann, og einnig látinn. Hann er sagður hafa skotið ömmu sína og afa til bana með byssu afa síns áður en hann hélt í skólann þar sem hann drap þrjá kennara og þrjá nemendur. Miðlum ber ekki saman um hvort hann stytti sér aldur eða féll fyrir byssukúlum lögreglu. Hið minnsta fimmtán særðust í árásinni.Anutin Charnvirakul, forsætisráðherra Taílands ræddi við blaðamenn í morgun og sagði atburðinn skelfilegan og lagði áherslu á mikilvægi strangra skotvopnalaga. Hann sagði atvik sem þetta undirstrika hvers vegna skotvopnaeign og endurnýjun skotvopnaleyfa sæta ströngum takmörkunum í Taílandi.
Táningur skaut átta til bana í Taílandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd