Verði aðildarviðræðum haldið áfram við Evrópusambandið telja Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, SFS, nauðsynlegt að Ísland standi utan sameiginlegrar sjávarútvegsstefnu ESB.Í nýrri greiningu samtakanna segir að þótt Ísland myndi formlega taka þátt í mótun ákvarðana í sjávarútvegsmálum innan ESB þá gæti það ekki eitt og sér tryggt að þær ákvarðanir tækju mið af mikilvægi sjávarútvegs fyrir íslenskt efnahagslíf. PÓLITÍSK FYRIRHEIT KOMI EKKI Í STAÐ VARANLEGRA YFIRRÁÐA Því sé nauðsynlegt fyrir íslensk stjórnvöld að tryggja að ákvörðunarvald um heildarafla, úthlutun aflaheimilda, aðgang að fiskimiðum og verndarráðstafanir verði í höndum Íslands.SFS telur þar að auki nauðsynlegt að Ísland fari með samningsforræði vegna deilistofna sem og að „reglan um hlutfallslegan stöðugleika, hagstæða uppha