Margir hafa þessa dagana skoðun á viðræðum um aðild að Evrópusambandinu (ESB), sem og áhyggjur af mögulegum aðildarviðræðum í framhaldinu og hugsanlegri aðild síðar meir. Í þessu máli eins og öðrum er mikilvægt að fylgja eigin sannfæringu en ekki skoðunum annarra. Rök hafa heyrst frá „já-liðum” en meira hefur verið um hræðsluáróður frá hinni fylkingunni.