Tafir á siglingum Sæfara í sumar bagalegar en fyrirhugaðrar þjónustuskerðingar enn verri

Halla Ingólfsdóttir, formaður hverfisráðs Grímseyjar, segir þær tafir á siglingum bagalegar sem orðið hafa eftir að minniháttar skemmdir urðu á skrúfubúnaði Grímseyjarferjunnar Sæfara í júní.Þær valda því að siglingin tekur oft um tíu til fimmtán mínútum lengri tíma en vanalega. Því hefur ferjan ítrekað komið seinna þangað en áætlun gerir ráð fyrir. Í júlíbyrjun sagði Vegagerðin að ferjan sigldi á takmörkuðu afli vegna gríðarlegra verðhækkana á olíu á heimsmarkaði.Akureyri.net hefur eftir Hilmari Stefánssyni, forstöðumanni almenningssamgangna hjá Vegagerðinni, að áfram verði Sæfara siglt með skemmdar skrúfur í sumar og að gert verði við þær næst þegar ferjan fer í slipp.Halla, sem er eigandi Arctic Trip auk þess að vera formaður hverfisráðs eyjunnar, segir seinkanirnar erfiðar, ekki síst þ
Tafir á siglingum Sæfara í sumar bagalegar en fyrirhugaðrar þjónustuskerðingar enn verri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd