Rigning eða súld á öllu landinu

Í dag spáir norðaustan 10 til 15 metrum á sekúndu um landið norðvestanvert en sunnan 5 til 10 sunnan- og austanlands. Það má búast við rigningu eða súld á öllu landinu og hita á bilinu 7 til 12 stig.Í athugasemd veðurfræðings segir að vindstrengir við fjöll á norðvestan- og vestanverðu landinu í dag og víða um land á morgun geti verið varasamir ökutækjum sem taka á sig vind.Norðan 8 til 15 metrar á sekúndu á morgun. Hann hangir þurr að mestu á suðvestanverðu landinu. Annars staðar víða rigning og talsverð úrkoma á Austurlandi ef að líkum lætur. Hiti á bilinu 6 til 16 stig, mildast syðst.Annað kvöld kólnar og dregur úr úrkomu. Á sunnudaginn á svo að draga úr norðanáttinni. Enn má búast við dálítilli vætu og svölu veðri á Norður- og Austurlandi. Sunnan- og vestanlands ætti hins vegar að verð
Rigning eða súld á öllu landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd