Fjórar F-16 orrustuþotur belgíska flughersins og 110 liðsmenn eru væntanlegir til landsins nú í vikulok þegar loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst. Þetta er í annað sinn sem Belgar sinna eftirlitinu.Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva bandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.Sveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á flugvellinum fram í miðjan september ásamt þeim flugsveitum NATÓ-ríkja sem eftirlit hafa með ferðum kafbáta við Íslandsstrendur. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum á Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli dagana 7. til 18. ágúst ef veður leyfir.Svokölluð þotugildra verður sett upp á Akureyrarflugvelli, sem er sterkur vír strengdur yfir flugbrautina og er ætlað að grípa flug