Dómari í bandaríska ríkinu Nýju-Mexíkó úrskurðaði í gær að samfélagsmiðlarisanum Meta beri að greiða yfir hálfan milljarð dala vegna ásakana yfirvalda um að valda almenningi óþægindum og börnum skaða.Meta rekur Facebook, Instagram og WhatsApp. Dómsmálaráðherra Nýju-Mexíkó, Raul Torrez, höfðaði mál gegn Meta árið 2023 með þeim rökum að fyrirtækið tryggði ekki öryggi barna fyrir níðingum og öðrum ógnum á miðlum sínum. Kviðdómur ákvað í mars að vegna þessa skyldi Meta greiða ríkinu 375 milljónir dala.Auk þessa skal fyrirtækið sjá til þess að börn undir þrettán ára aldri í Nýju-Mexíkó komist ekki inn á miðla þess. Einnig þurfi Meta að upplýsa dómstólinn reglulega um hvernig innleiðing skilyrðanna gangi.Meta kveðst í yfirlýsingu ætla að áfrýja niðurstöðunni enda geri fyrirtækið allt til þess að