Leiðtogar Sádi Arabíu, Tyrklands og Pakistan munu í dag undirrita gagnkvæman varnarsamning í borginni Jeddah við Rauðahaf. AFP-fréttaveitan hefur eftir sádiarabískum heimildarmanni tengdum her og ríkisstjórn, sem krefst nafnleyndar, að stríð Bandaríkjanna gegn Íran hafi orðið til þess að flýta samkomulagi sem hafi verið í undirbúningi mánuðum saman. Mörg nágrannaríki Írans hyggjast tryggja aukna samvinnu í varnarmálum vegna beinna og óbeinna áhrifa stríðsins. Annar ónafngreindur heimildarmaður tengdur stjórnvöldum í Sádi Arabíu sagði jafnframt að krónprinsinn Mohammed bin Salman, Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti og pakistanski forsætisráðherrann Shehbaz Sharif myndu staðfesta samninginn í dag. Sharif og Asim Munir, yfirmaður pakistanska heraflans, komu til Sádi Arabíu í gær og verða þ