Arnarnesvegi verður lokað milli Fífuhvammsvegar og Reykjanesbrautar á morgun vegna malbikunarframkvæmda, að því gefnu að veður leyfi.Fram kemur í tilkynningu á vef Garðabæjar að fræsa eigi hringtorgið við Smárahvammsveg. Einnig lokast Nónhæð og Smárahvammsvegur við Arnarnesveg meðan á framkvæmdum stendur.Áætlað er að vinnan standi yfir frá klukkan 9 til 14. Hjáleiðir verða merktar og vegfarendur beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir. Þá er fólk hvatt til að sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og vinnuvélar verða að störfum nærri akstursbrautum.Rauða línan sýnir svæði sem verður lokað og grænu línur sýna hjáleiðir um Fífuhvammsveg.Gardabaer.is / Garðabær