Slökkvilið var kallað út vegna elds í Kópavogshöfn á Kársnesi í kvöld.Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins voru tveir slökkviliðsbílar sendir á vettvang, annar frá stöðinni í Skógarhlíð og hinn frá stöðinni í Hafnarfirði.Eldurinn var ekki mikill og tekist hefur að ráða niðurlögum hans.