Heimalningurinn Messi í vinnuskólanum á Hellu

Heimalningurinn Messi á Hellu er tíu daga gamall. Hann hefur sótt vinnuskólann í þorpinu og leikið sér með fótbolta.Fjölskylda fann lambið langt úti í mýri rétt við þorpið á Hellu, eitt og yfirgefið. Hún ákvað að taka það heim til sín, sinna því þar og gefa því úrvalsmjólk úr pela.Heimalningnum Messi á Hellu finnst skemmtilegast að mæta í vinnuskólann með unglingunum á staðnum og leika sér með fótbolta. Hann er aðeins tíu daga gamall.Björgvin Geir Sigurðarson hefur séð einna mest um lambið, sem er hrútur, og hefur fengið nafnið Messi. Heimalningurinn vekur mikla athygli hjá krökkunum í vinnuskólanum en Björgvin, sem er 14 ára, tekur Messi oft með sér í vinnuna.„Já, ég tek hann stundum með mér, þá er hann hress. Ég gef honum nóg að drekka og þá eltir hann okkur eins og hundur,” segir Björgv
Heimalningurinn Messi í vinnuskólanum á Hellu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd