Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur, núverandi Íslandsmeistari er í forystu að loknum fyrsta hring á Íslandsmótinu í golfi sem haldið er á Korpúlfsstaðavelli í Grafarvogi. Dagbjartur byrjaði mjög vel og fékk þrjá fugla á fyrstu fjórum holunum, en svo skolla á fimmtu holu en aftur fugl á sjöttu og sjöundu.Dagbjartur spilaði fyrsta hringinn á samtals fimm höggum undir pari og hefur tveggja högga forskot á næstu menn, Arnór Tjörva Þórsson og Tómas Eiríksson Hjaltested sem báðir koma úr GR.Sjá má stöðuna hér.Sýnt verður beint frá keppni á öðrum hring á morgun frá klukkan hálffjögur á RÚV.