Leikgleði skiptir meira máli en að vera góður í skák hjá Bad at Chess Club í Dortmund í Þýskalandi. Teflt er undir dúndrandi tónlist og hægt að fá sér bjór.Á bilinu fimmtíu til hundrað manns mæta á viðburði og mót hjá klúbbnum, The Bad Chess Club, í hverjum mánuði. Í þetta skipti hittist klúbburinn í gamalli kirkju í Dortmund sem hefur verið breytt í bar.Sumum finnst tónlistin sem plötusnúðurinn spilar eðlileg bakgrunnshljóð og aðrir tengja frekar við andrúmsloftið í klúbbnum en hefðbundinn skákklúbb þar sem allt er hljótt. Stofnendur klúbbsins segja skák krefjast mikillar virðingar og fólki finnist eins og aðeins snillingar nái tökum á íþróttinni.„Ég held að það fæli marga frá. Við ákváðum að lækka rána, hvetja fólk til að koma, reyna sig og skemmta sér,“ segir Paul Buckermann.