Óafturkræfur skaði getur orðið á augum ef horft er beint í sólina og venjuleg sólgleraugu duga ekki til að verja augun fyrir skaðlegum geislum frá sólinni. Almyrkvi verður sjáanlegur frá vesturhluta landsins 12. ágúst.Deildarmyrkvinn hefst um korter í fimm og þá er mikilvægt að nota sólmyrkvagleraugun til að virða sólina fyrir sér.Almyrkvinn hefst klukkustund síðar. Þegar skuggi tunglsins hylur alla sólarkringluna má taka gleraugun af í örstutta stund. Almyrkvinn getur varað allt frá nokkrum sekúndum upp í rúmar tvær mínútur. Þegar honum er að ljúka þarf að setja sólmyrkvagleraugun upp aftur til að forðast augnskaða. Börnum yngri en 12 ára er ráðlagt að bera gleraugun allan tímann.Athugið að í sjónvarpsfréttinni sagði augnlæknirinn „sólgleraugu“ þegar átt var við „sólmyrkvagleraugu.“