Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að íslensk stjórnvöld geri kröfu um „fullveldisyfirráð yfir öllum sjávarútvegi“ komi til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þetta segir hún í viðtali við breska blaðið Financial Times sem birtist í dag.„Þegar kemur að fiskveiðum erum við stórveldi í Evrópu,“ segir Þorgerður Katrín. „Evrópusambandið verður að taka það til greina. Ef það gerir það ekki, þá verður erfitt fyrir okkur að eiga í viðræðum,“ hefur blaðið eftir henni.Í umfjöllun Financial Times segir að með þessu sé látið reyna á hversu langt Evrópusambandið sé til í að aðlaga regluverk sitt til að koma til móts við Ísland.Þótt aðildarríki geti sjálf útdeilt kvóta innan lögsögu sinnar, myndi Ísland að óbreyttu ekki lengur hafa einhliða vald til að ákvarða heildaraflamark, ver