Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkur, segist ánægður með endurskoðun á gerð áhættumats fyrir þéttbýli í Grindavík. Nýja nálgunin felur í sér að áhættumatið byggi ekki aðeins á vísindalegu mati, heldur taki einnig mið af reynslu og gildismati þeirra sem búa og starfa við langvarandi óvissu.