Í byrjun vikunnar lagðist í fyrsta sinn stórt farþegaskip úti fyrir Kópaskeri og komu 150 farþegar í land í þorpinu. Í þeirri höfn eru mestmegnis smábátar svo dagurinn var eftirminnilegur fyrir hafnarstjóra.„Það kom skip hér aðfaranótt mánudags og lagðist hér við akkeri rétt fyrir utan Kópasker og þeir streymdu bara léttabátarnir hérna, þetta eru svona gúmmíbátar sem flytja tíu manns í einu sirka og þetta gekk bara mjög vel“, segir Guðmundur Magnússon, hafnarstjóri á Kópaskeri.Aðeins blés á Norðausturlandi á mánudag þegar farþegum var siglt í land í tíu manna gúmmíbátum inn að Kópaskershöfn, en siglingarnar fjölmörgu fram og til baka gengu þó allar vel að sögn heimamanna.Á Kópaskeri búa 126 manns. Í leiðangursskipinu Ultramarine voru um 150 manns, svo þar með var fjöldinn í þorpinu ríflega